Karlakvöld Femínistafélags Íslands - Andfemínismi

Í kvöld heldur Karlahópur Femínistafélags Íslands Karlakvöld undir yfirskriftinni Andfemínismi - er í lagi að hata femínista? Fundurinn hefst klukkan 20:00 og er haldinn á Grand Rokk. Fundurinn er öllum opinn.

Rætt verður hvernig umræðan í jafnréttismálum hefur þróast undanfarin ár. Fjallað verður um hvernig andúð gegn femínistum birtist í jafnréttisumræðunni og hvernig hún virðist sífellt verða öfgafyllri í opinberri umræðu. Er þetta eitthvað nýtt? Er umræðan öfgafyllri? Og er allt í lagi að hata femínista? Einnig verður rætt um hvort að þetta sé meinlaust og hvort og þá hvernig eigi að bregðast við þessu.

Erindi flytja: Sóley Tómasdóttir varaborgarfulltrúi, Katrín Oddsdóttir sérfræðingur í mannréttindum og Atli Gíslason alþingismaður.

Fundarstýra er Magga Pé.

Karlakvöldið er hluti af 5 ára afmælisdagskrá Femínistafélags Íslands.