Karlar enn við stjórnvölinn

Karlar eru enn við stjórnvölinn á Íslandi í mun ríkara mæli en konur, en hlutur kvenna fer þó vaxandi í ýmsum áhrifastöðum en stendur í stað eða minnkar í öðrum. Þetta kemur fram í Hagtíðindum, sem Hagstofan gefur út, um konur og karla í áhrifastöðum 2008.Konur eru um þriðjungur (32–37%) þingmanna, ráðherra, sveitarstjórnarmanna, ráðuneytisstjóra, skrifstofustjóra ráðuneyta, héraðsdómara og nefndarmanna í opinberum nefndum. Þær eru um fjórðungur (24–29%) forstöðumanna ríkisstofnana, framkvæmdastjóra sveitarfélaga og stjórnarmanna stærstu lífeyrissjóðanna.
 
Konur eru meirihluti stjórnenda á leikskóla- og grunnskólastigi en karlar meirihluti stjórnenda á framhaldsskóla- og háskólastigi. Kynjaskipting meðal stjórnarformanna og stjórnarmanna fyrirtækja var óbreytt árin 1999–2007, en konur voru þar rúmur fimmtungur. Hlutfall kvenna af framkvæmdastjórum hækkaði úr 15% í 19% á sama tíma. Dagblöðum er nú sem fyrr ritstýrt af körlum en konur hafa komið að ritstjórn og fréttastjórn dagblaða síðustu árin.

Hagtíðindin um konur og karla í áhrifastöðum 2008 má nálgast hér.