Kjarajafnrétti strax!

Konur eru hvattar til að leggja niður vinnu kl. 14:38 mánudaginn 24. október og fylkja liði á samstöðufund á Austurvelli, kl. 15:15 undir kjörorðinu KJARAJAFNRÉTTI STRAX! 

Meðalatvinnutekjur kvenna eru 70,3% af meðalatvinnutekjum karla. Konur eru því með 29,7% lægri tekjur að meðaltali. Samkvæmt því hafa konur unnið fyrir sínum launum eftir 5 klukkustundir og 38 mínútur miðað við fullan vinnudag frá kl. 9–17. Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið kl. 14:38. 
Þann 24. október árið 1975 lögðu konur um allt land niður vinnu til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna fyrir þjóðfélagið. Árið 2005 héldum við upp á kvennafrídaginn í annað sinn og konur gengu í tugþúsunda tali út af vinnustað á þeirri mínútu þegar þær hættu að fá borgað fyrir störf sín miðað við karla. Þá gengu konur út klukkan 14:08. Árið 2010 gengu konur út klukkan 14:25.

Nú göngum við út klukkan 14:38. Við höfum grætt hálftíma á ellefu árum. Tæplega þrjár mínútur á hverju ári. Með þessu áframhaldi þurfum við að bíða í 52 ár eftir að hafa sömu laun og sömu kjör og karlar, til ársins 2068! Það er óásættanlegt! 

Fylgstu með á www.kvennafri.is og facebook.com/kvennafri. Taktu þátt í samræðunum á Twitter undir myllumerkinu #kvennafrí og #jöfnkjör, og fylgdu kvennafríinu á @kvennafri

Að fundinum standa samtök launafólks og samtök kvenna: Alþýðusamband Íslands, BSRB, Bandalag háskólamanna, Kennarasamband Íslands og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja, Aflið, Bandalag kvenna í Reykjavík, Bríet – félag ungra feminista, Delta Kappa Gamma, Druslubækur og doðrantar, Druslugangan, Dziewuchy Dziewuchom Islandia – Konur konum Ísland, Í kjölfar Bríetar, Jafnréttisfélag Háskólans í Reykjavík, Femínistafélag Háskóla Íslands, Femínistafélag Íslands, Félag kvenna í atvinnulífinu, Kítón – Konur í tónlist, Knúz.is, Kvenfélagasamband Íslands, Kvennahreyfing Samfylkingarinnar, Kvennahreyfing ÖBÍ, Kvennaráðgjöfin, Kvenréttindafélag Íslands, Landssamband Framsóknarkvenna, Landssamband Sjálfstæðiskvenna, Rótin, Samtök kvenna af erlendum uppruna, Samtök um kvennaathvarf, Samtökin ’78, Soroptimistasamband Íslands, Sólstafir, Stígamót, Tabú, UNWomen, WIFT – Konur í kvikmyndum og sjónvarpi og Zontasamband Íslands.