Konur og karlar á Íslandi 2008

Í gær gaf Jafnréttisstofa út bæklinginn Konur og karlar á Íslandi 2008, í samstarfi við Hagstofu Íslands og félags- og tryggingamálaráðuneytið. Um er að ræða samantekt á helstu tölum um hlutfall kynjanna í ýmsum málaflokkum. Í bæklingnum er meðal annars að finna upplýsingar um stöðu kynjanna á atvinnumarkaðnum, í menntakerfinu og í áhrifastöðum, ásamt upplýsingum um mannfjölda, fjölskyldur og fæðingarorlof. Bæklingurinn er hugsaður til að kynna stöðu jafnréttismála á Íslandi og hefur hann einnig verið gefinn út á ensku.
Bæklinginn er hægt að nálgast í heilu lagi á pdf-formi, ensku útgáfuna er hægt að nálgast hér.