KONUR OG KARLAR Á ÍSLANDI 2017

Bæklingurinn Konur og karlar á Íslandi 2017 er kominn út. Í bæklingnum má finna ýmsar upplýsingar um stöðu kvenna og karla í íslensku samfélagi. Jafnréttisstofa er útgefandi bæklingsins í samstarfi við Hagstofu Íslands og velferðarráðuneytið.

Í bæklingnum kemur fram að karlar hafa hærri laun en konur, þeir eru fjölmennari í áhrifastöðum og sem viðmælendur í fréttum og fréttatengdum þáttum. Konur lifa hins vegar lengur en karlar, þær eru fjölmennari í háskólanámi og taka frekar fæðingarorlof.

Bæklingurinn er gefinn út á ensku og íslensku. Hægt er að nálgast útgáfuna hér á heimasíðunni á íslensku og ensku. Einnig er hægt að panta eintök með því að senda póst til Jafnréttisstofu á netfangið jafnretti@jafnretti.is