Konur taka af skarið! - Akureyri

AkureyrarAkademían, ásamt Jafnréttisstofu, Starfsgreinasambandinu og JCI Sprota standa fyrir námskeiði sem ber yfirskriftina Konur taka af skarið!  Viltu láta til þín taka og hafa áhrif á verkalýðsbaráttuna og samfélagið?

Námskeiðið er opið öllum konum sem eru félagar í Starfsgreinasambandi Íslands eða í starfsmannafélögum sveitafélaga, þeim að kostnaðarlausu og hvetjum við þær sem hafa áhuga á verkalýðsmálum til að skrá sig sem fyrst.

Námskeiðið verður haldið á Akureyri laugardaginn 10. nóvember. Skráningarfrestur rennur út á morgun, 8. nóvember. 

Hægt er að sjá dagskrá og nánari upplýsingar hér. 

Einnig er hægt að finna viðburðinn á Facebook-síðu okkar.