Kosningavefur félagsmálaráðuneytisins

Félagsmálaráðuneytið hefur opnað sérstakan kosningavef á vefslóðinni www.kosningar.is en hann er tileinkaður sveitarstjórnarkosningum sem verða haldnar laugardaginn 27. maí 2006.


Félagsmálaráðuneytið hefur opnað sérstakan kosningavef á vefslóðinni www.kosningar.is en hann er tileinkaður sveitarstjórnarkosningum sem verða haldnar laugardaginn 27. maí 2006. Markmið vefsins er að tryggja að allir sem þurfa á upplýsingum og leiðbeiningum að halda geti nálgast þær á einum stað. Á kosningavefnum má meðal annars finna kort sem sýnir kynjahlutföll í sveitarstjórnum og grein um þróun þátttöku kvenna í sveitarstjórnum undir liðnum Jafnréttismál.