Kvennaathvarfið 25 ára

Fimmtudaginn 6. desember eru liðin 25 ár frá því að Kvennaathvarfið opnaði. Í tilefni af því býður Kvennaathvarfið til sigurhátíðar í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og verður dagskráin tileinkuð konunum sem brotist hafa út úr ofbeldissamböndum.Reynt verður að varpa ljósi á lífið í athvarfinu með minningarbrotum starfskvenna og dvalarkvenna í gegn um tíðina auk þess sem sýnt verður brot úr kynningarmyndbandi um Kvennaathvarfið sem verið er að vinna.

Einnig verður boðið upp á ávörp og tónlist, kaffi og konfekt.Að auki verður í salnum ljósmyndasýningin Kraftakonur en hún samanstendur af 2887 myndum af konum, jafnmörgum og kraftakonurnar eru sem dvalið hafa í Kvennaathvarfinu frá upphafi.  Með myndunum fylgja kveðjur kvennanna á myndunum til kraftakvennanna sem brotist hafa úr fjötrum ofbeldisins.  Hátíðin byrjar klukkan 17 og er öllum opin.