Kvennabarátta og kristin trú

Útgáfuráðstefna í tilefni af útgáfu bókarinnar Kvennabarátta og kristin trú verður í Háskóla Íslands á morgunn. Ritstjórar bókarinnar eru Arnfríður Guðmundsdóttir og Kristín Ástgeirsdóttir.
DAGSKRÁ:

Setning: Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur.

Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir guðfræðingur: Almennur prestsdómur – líka fyrir konur?

Nína Leósdóttir guðfræðingur: „Viltu N. dóttir taka þennan mann þér til húsbónda…?’’Um hjónavígsluritúal og hjónavígslusálma 1718-1901
Erla Hulda Halldórsdóttir sagnfræðingur: Orðræða hjónabandsins og mótun kyngervis'.

Kaffihlé.

Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur: „Fram og syng þú leiðarlag, landsins konum hraustum.“ Kvenréttindabaráttan í skrifum íslenskra kvenna og karla um aldamótin 1900.

Dr. Sigríður Dúna Kristsmundsdóttir: Með Ólafíu á aðra hönd...Frumkvöðullinn og baráttukonan Ólafía Jóhannsdóttir.

Dr. Dagný Kristjánsdóttir bókmenntafræðingur: Réttur kærleikans. Ástin og trúin í verkum Kristínar Sigfúsdóttur.

Málstofustjóri: Dr. Auður Styrkársdóttir forstöðumaður Kvennasögusafns Íslands.

Staður: 101 Oddi, HÍ.

Tími: Miðvikudaginn 29. apríl 2009, kl. 13 – 16.

Kristnihátíðarsjóður styrkti verkefnið.