Kvennafrídagurinn á Seyðisfirði

Skólafólk á Seyðisfirði ætlar að hittast á Sólveigartorgi klukkan 15:00 í dag, Kvennafrídaginn, til að taka afstöðu með kjarajafnrétti. Seyðfirðingum er boðið að fjölmenna líka. Fundurinn er fyrst og fremst táknrænn gjörningur án ræðuhalda og eru konur og karlar hvött til að mæta.

Til gamans má geta þess að Sólveigartorg var vígt þann 19. júní 2015, í tilefni af 100 ára kosningaafmælis kvenna.