Kvennasöguganga á Akureyri 19. Júní

Þann 19. júní 1915 fengu íslenskar konur 40 ára og eldri kosningarétt og kjörgengi til alþingis. Baráttan hafði staðið frá árinu 1885 þó fyrsta opinbera krafan um kosningarétt kvenna hafi ekki komið fram fyrr en árið 1895.   Í ár eru liðin 93 ár frá því konur öðluðust kosningarétt og kjörgengi á við karla. Í tilefni dagsins verður í ár boðið upp á Kvennasögugöngu um innbæinn á Akureyri. Gengið verður frá Samkomuhúsinu kl.16.15 og mun Elín Antonsdóttir leiða gönguna. Áður en gangan hefst  mun Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri, ávarpa göngugesti en síðan verður haldið af stað sem leið liggur inn innbæinn.  Á  leið  um innbæinn munu göngugestir vitja ýmissa kvenna sem bjuggu og störfuðu í innbænum.  Staldrað verður við heimili Vilhelmínu Lever, Ragnheiðar O. Björnsson, Önnu Þorbjargar, Elísabetar Geirmundsdóttur og fleiri kvenna í innbænum.  

Í lok göngu flytur Valgerður Bjarnadóttir ávarp og í framhaldi munu Zonta-klúbbarnir á Akureyri afhenda Aflinu styrktarfé sem var safnað með sölu rósanælurnar 8. mars síðastliðinn.

Kvennasögugangan er nú gengin í fyrsta sinn á Akureyri og vonandi mun hún finna sér stað í hugum bæjarbúa og verða að árvissum viðburði.
         
Auk þess að vera góð útivera þá hefur gangan það að markmiði að glæða húsin í innbænum lífi og vonandi munu göngugestir upplifa nýja og áhugaverða tengingu við húsin.
 
Að göngu lokinni verður boðið upp á kaffi í húsi Zontaklúbbs Akureyrar.