Kvennasöguganga um innbæinn Akureyri 19.júní

Þann 19. júní 1915 fengu íslenskar konur 40 ára og eldri kosningarétt og kjörgengi til alþingis. Baráttan hafði staðið frá árinu 1885 þó fyrsta opinbera krafan um kosningarétt kvenna hafi ekki komið fram fyrr en árið 1895. Í ár eru liðin 96 ár frá því konur öðluðust kosningarétt og kjörgengi á við karla. Í tilefni dagsins verður boðið upp á Kvennasögugöngu um innbæinn á Akureyri. Gengið verður frá Minjasafninu kl.10:30 og mun Sigrún B. Óladóttir,leiðsögumaður leiða gönguna. Inga Margrét Árnadóttir, formaður Zontaklúbbs Akureyrar ávarpar göngugesti við Minjasafnið en síðan verður haldið af stað sem leið liggur um innbæinn. Á leið um innbæinn munu göngugestir vitja ýmissa kvenna sem bjuggu og störfuðu þar. Staldrað verður við heimili Vilhelmínu Lever, Ragnheiðar O. Björnsson, Önnu Þorbjargar, Elísabetar Geirmundsdóttur og fleiri kvenna í innbænum.

Auk þess að vera góð útivera þá hefur gangan það að markmiði að glæða húsin í innbænum lífi og vonandi munu göngugestir upplifa nýja og áhugaverða tengingu við húsin.

Kvennasögugangan er nú gengin í fimmta sinn á Akureyri en þátttaka hefur alltaf verið mjög góð.  Gangan hefur myndað nýja tengingu við innbæinn og varpar ljósi á líf kvenna sem höfðu margar hverjar mikil áhrif á líf bæjarbúa á sínum tíma.

Að göngu lokinni verður boðið upp á kaffi og kleinur við Samkomuhúsið.
 
Jafnréttisstofa hvetur konur og karla til að taka þátt í kvennasögugöngunni.




Jafnréttisstofa, Akureyrarbær, Minjasafnið á Akureyri og Zontaklúbbarnir á Akureyri