Kynferðisleg misnotkun á börnum í trúarlegu samhengi

Fagráð um meðferð kynferðisbrota innan Þjóðkirkjunnar, Guðfræði og trúarbragðafræðideild HÍ og Guðrún Ebba Ólafsdóttir bjóða til málþings og námskeiðs um kynferðisleg misnotkun á börnum í trúarlegu samhengi. Aðalfyrirlesari verður Rev. Dr. Marie M. Fortune frá FaithTrust Institute í BNA. Málþingið verður haldið í Hátíðasal Háskóla Íslands þriðjudaginn 18. október kl. 10-13 er ókeypis og öllum opið. Námskeiðið verður haldið í Neskirkju miðvikudaginn 19. október kl. 8:30-17 og kostar 3.000 kr.

Dagskrá Málþings í Hátíðasal Háskóla Íslands í Aðalbyggingu HÍ þriðjudaginn 18. október, kl. 10 – 13. 
 
Yfirskrift: Kynferðisleg misnotkun á börnum í trúarlegu samhengi 

Aðalfyrirlesari: Rev. Dr. Marie M. Fortune 
Stutt erindi flytja: 
Dr. Berglind Guðmundsdóttir sálfræðingur við Landspítala 
Brynhildur G. Flóvenz lögfræðingur og dósent við Lagadeild HÍ 
Guðrún Ebba Ólafsdóttir kennari og stjórnarmaður Blátt áfram og Drekaslóðar 
Sr. Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur og lektor við Guðfræði og trúarbragðafræðideild HÍ 
Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir guðfræðingur og dósent við Guðfræði og trúarbragðafræðideild HÍ 
Stjórnandi málþings: Elín Hirst, fréttamaður 

Málþingið er ókeypis og öllum opið.

Dagskrá námskeiðsins í Neskirkju v/Hagatorg, Reykjavík 19. október 2011 kl. 8:30-17 

Yfirskrift: Sexual Misconduct in the Context of Church and Faith Organizations: Kynferðisleg misnotkun og rétt viðbrögð í samhengi kirkju og trúfélaga 

8:30 Afgreiðsla námskeiðsgagna 
9-11:30 Raising awareness – sexual misconduct and abuse within religious context/church 
11:30-12:30 Hádegisverður 
12:30-14:30 Framework for just response 
14:30-15 Kaffi 
15-17 Professional Boundaries in Church Work 
Ath. Uppröðun efnis getur breyst 

Fyrirlesari námskeiðsins er Rev. Dr. Marie M. Fortune. Þá mun Vilborg Guðbjörg Guðnadóttir geðhjúkrunarfræðingur og meðlimur Fagráðs kirkjunnar kynna drög að leiðbeiningum um vinnu með fólki í viðkvæmum aðstæðum. Stjórnandi námskeiðsins: Sr. Gunnar Rúnar Matthíasson formaður Fagráðs kirkjunnar. 

Námskeiðið fer fram á ensku en fyrirlestrar Rev. Dr. Fortune verða textaðir á skjá. 

Námskeiðið er öllum opið. Það er sniðið að þörfum kirkjufólks, presta, djákna, kirkju- og safnaðarleiðtoga, sóknarnefnda- og kirkjuþingsfulltrúa, starfsmanna kirkna og annarra sem láta sig málefnið varða. Gjald fyrir námskeiðsgögn og veitingar kr. 3.000,- greiðist við inngang. Þátttakendur þurfa að skrá sig fyrir 14. október hjá Kristínu Arnardóttur á netfangið: kristin.arnardottir[at]kirkjan.is eða í síma 528-4000.

Heimsókn Rev. Dr. Marie M. Fortune er kostuð af: 
Þjóðkirkjunni, Guðfræðistofnun HÍ, Forlaginu, Prestafélagi Íslands, Kjalarnesprófastsdæmi, Reykjavíkurprófastsdæmi Eystra og Reykjavíkurprófastsdæmi Vestra. 

Kynning:
Rev. Dr. Marie M. Fortune er einn virtasti fagaðili á sviði fræðslu- og forvarnarmála um kynferðislegt ofbeldi í Bandaríkjum Norður Ameríku. Hún er guðfræðingur, vígður prestur í The United Church of Christ, auk þess að vera stofnandi og veita forstöðu FaithTrust Institute í Seattle (1977). FaithTrust stofnunin býður upp á þjálfun, ráðgjöf, kennslu og fræðsluefni í því markmiði að binda endi á kynferðislegt ofbeldi og heimilisofbeldi og hefur Fortune sinnt þessum verkefnum í fjölda mismunandi landa, með mismunandi menningu og trúarbrögð, auk heimalandsins. Markmiðið með komu Rev. Dr. Marie M. Fortune til Íslands er að bjóða sem flestum að njóta þekkingar hennar og reynslu. 

Rev. Dr. Marie M. Fortune gaf út bókina Sexual Violence. The Unmentionable Sin árið 1983 þar sem hún fjallar um kynferðislegt ofbeldi frá sjónarhóli guðfræði, siðfræði og sálgæslu. Markmið bókarinnar var að rjúfa þögnina um kynferðislegt ofbeldi innan kristinna kirkna og leitast við að þjálfa presta og annað starfsfólk kirkjunnar í að styðja og reisa upp fórnarlömb kynferðisofbeldis. Rúmlega tuttugu árum síðar, 2005, kom svo út bókin Sexual Violence. The Sin Revisited þar sem Fortune tekur upp þráðinn að nýju og endurskoðar og endurmetur stöðu þessa málaflokks innan kristinna kirkna í ljósi þeirrar.