Kyngervi - menntun og miðlun

Rannsóknarhópur í kynjafræðum við Kennaraháskóla Íslands gengst fyrir málstofu föstudaginn 2. febrúar kl 14:00- 16:00 í stofu K 207 í KHÍ. Þar munu fimm meðlimir hópsins flytja erindi og kynna rannsóknir sínar.


Dagskrá:

14:00 - 14:20. Þórdís Þórðardóttir, lektor við KHÍ:

"Ég ætla að segja mig úr þessu feministakjaftæði".

Fjallað er um könnun sem gerð var í Kennaraháskóla Íslands, haustið 2004 í því skyni að kanna áhuga 1.árs nema á kynjafræðum sem námsgrein í kennaranámi. Í ljós kom að 90% kennaranema töldu þörf á kynjafræðimenntun í kennaranámi. Þrátt fyrir þessar niðurstöður skráðu fáir sig á valnámskeið í kynjafræðum árið eftir og enn færri sóttu það. Það kom kennurum sem kenndu valnámskeið í kynjafræðum í grunndeild KHÍ 2003 og

2005 í opna skjöldu hversu takmörkuð þekking kennaranemanna var á stöðu kynjanna og hvernig hún beindist helst að fjölmiðlaumfjöllun um bága stöðu drengja í skólum. Dregin verður upp mynd af reynslu kennara sem kenndu á þessum námskeiðum og hún sett í samhengi við niðurstöður framangreindrar könnunar.

14:30 - 14:45 Arna H. Jónsdóttir og Steinunn Helga Jónsdóttir, lektorar við KHÍ: Væntingar og veruleiki. Rannsókn á framhaldsnámi kvenna og karla á háskólastigi.

Greint verður frá fyrstu hugmyndum um rannsókn á því sem hvetur konur og karla til framhaldsnáms í Kennaraháskóla Íslands og fleiri háskólum. Aflað verður upplýsinga um hvort og þá hvernig einstaklingar eru styrktir eða hvattir til framhaldsnáms, hvaða væntingar þeir hafa til m.a. framgangs, launahækkana og möguleika til áhrifa og hvort væntingar verða að veruleika. Áhersla verður lögð á að greina jafnt sameiginlega sem ólíka þætti í námsvali og starfsferli kynjanna. Loks verður rætt um val á þátttakendum, rannsóknaraðferðir og gildi rannsóknar af þessu tagi.

Kaffihlé

15:00 - 15:25 Salvör Gissurardóttir, lektor við KHÍ: Tæknisögur.

Fjallað verður um sýn kvenna á tæknina og lýsingu þeirra á því hvernig þær takast á við tölvu- og upplýsingatækni. Þessar sögur eru fengnar af hinum ýmsu netmiðlum þar sem konur greina frá því hverjir hjálpa þeim og hvernig þeim tekst að takast á við nýja tækni.

15:30 - 15:50 Eiríksína Kr. Ásgrímsdóttir, bókmenntafræðinur og verkefnastjóri hjá SRR - Símenntun Rannsóknir Ráðgjöf - KHÍ:

"Það var í mér hundur við allan lærdóm".

Varpað verður ljósi á nokkrar myndir af kennurum og skólastarfi í sjálfsævisögum og skáldsögum og þær myndir settar í bókmenntalegt og samfélagslegt samhengi. Greint verður frá ríkjandi myndmáli, einkennum þess og samhengi í frásögninni. Skrif um kennara einkennast oft af karnivölskum og gróteskum lýsingum þar sem leitast er að brjóta niður og afbyggja formlegt vald sem stéttinni er ætlað að standa fyrir.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Boðið verður upp á léttar veitingar að dagskrá lokinni.