Kynhlutverk og kynskiptur vinnumarkaður, ný kynslóð nýjar hugmyndir?

Í tilefni alþjólegs baráttudags kvenna þann 8.mars verður haldinn hádegisverðarfundur á Grand Hótel Reykjavík undir yfirskriftinni „Kynhlutverk og kynskiptur vinnumarkaður, ný kynslóð nýjar hugmyndir?“ Dagskráin er skipulögð í samstarfi ASÍ, BSRB, BHM, KÍ, Jafnréttisráðs og Jafnréttisstofu. Á dagskránni eru þrjú erindi sem öll fjalla um ungt fólk.Andrea Sigrún Hjálmsdóttir, lektor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri flytur erindið „Er þetta veröld sem við viljum?“ Um ungt fólk og jafnréttisviðhorf. Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kennari í Borgarholtsskóla og forkona Jafnréttisnefndar KÍ spyr Hefur klámvæðingin áhrif á kynskiptan vinnumarkað? Að lokum flytur Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, prófessor í náms- og starfsráðgjöf við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands erindið Starfsval í valdakerfi. Fundarstjórn er í höndum Signýar Jóhannesdóttur, varaforseta ASÍ.

Dagskráin fer fram í Gullteigi B og hefst kl. 11:45. Í upphafi fundar er framreiddur léttur hádegismatur. Nánari upplýsingar í viðhengi.

Dagskrána má sjá hér.