Kynjuð fjárlagagerð. Hvað er það?

Dagskrá ráðstefnunnar um Kynjaða fjárlagagerð er nú aðgengileg. Fer hún fram á Hótel Nordica, 13 nóvember og er skráning í fullum gangi. Ráðstefnan er sérstaklega ætluð forstöðumönnum ríkisstofnana, skrifstofu- og ráðuneytisstjórum, fulltrúum í fjárlaganefnd, fjármálastjórum, þingmönnum og ráðherrum, embættismönnum í norrænu samstarfi og sérfræðingum um jafnréttismál.Kynjuð fjárlagagerð er flestum framandi hugtak enn sem komið er og á ráðstefnunni verður leitast við að skýra út hugmyndafræðina og aðferðirnar sem hún byggir á. Meðal annars verður skoðað hvaða áhrif ákvarðanir um ríkisútgjöld hafa á kynin.

Norrænir sérfræðingar munu halda erindi um aðferðarfræði kynjaðrar fjárlagagerðar og má þar helst nefna:
Païvi Valkama sérfræðing hjá finnska fjármálaráðuneytinu, Catharina Schmitz, sænskan sérfræðing í kynjaðri fjárlagagerð og Sigurð Helgason framkvæmdastjóra Stjórnarhátta. Dagskránna í heild má lesa hér.

Ráðstefnan er liður í formennskuáætlun Íslendinga í Norrænu ráðherranefndinni á árinu 2009.
Boðið verður upp á léttar veitingar og hádegisverð. Aðgangur ókeypis.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna í hér í boðsbréfi.

Skráning fer fram í gegnum tölvupóst hjá Halldóru Friðjónsdóttur hjá fjármálaráðuneytinu og veitir hún jafnframt nánari upplýsingar. 

Verkefnið er með sér heimsaíðu sem má finna hér.