Kynning á greinargerð starfshóps um aukinn hlut kvenna

Miðvikudaginn 20. janúar kl. 12 í stofu L201 mun Bergljót Þrastardóttir, sérfræðingur á Jafnréttisstofu flytja erindið Endurspeglar þín sveitarstjórn hlutföll kynjanna í samfélaginu? Eflum lýðræðið - Konur í sveitarstjórn. Þrátt fyrir að hlutfall kvenna í sveitarstjórnum hafi aukist mikið síðustu áratugina hallar enn verulega á konur. Við sveitarstjórnarkosningarnar 2006 voru kjörnar 189 konur í sveitarstjórnir, eða 36% og 340 karlar eða 64%. Í fimm sveitarfélögum var engin kona kjörin í sveitarstjórn. Konur voru hins vegar í meirihluta í 11 sveitarstjórnum eftir kosningarnar, en höfðu verið í meirihluta í 10 sveitarfélögum á fyrra kjörtímabili.

Á síðasta ári skipaði Kristján L. Möller samgönguráðherra starfshóp sem átti að leggja fram tillögur um aðgerðir stjórnvalda til að jafna betur stöðu kynjanna í sveitarstjórnum við næstu sveitarstjórnarkosningar sem verða nú í vor. Starfshópurinn skilaði tillögum sínum til ráðherra 20. október síðastliðinn og mun Bergljót kynna tillögur og greinargerð starfshópsins.

Greinargerðina má nálgast hér