Kynningarkvöld fyrir konur um stjórnmál

Fimmtudagskvöldið, 28. janúar var haldið kynningarkvöld fyrir konur um stjórnmál í sal stéttarfélagsins Framsýnar á Húsavík. Kynningarfundurinn var á vegum kvenna í stjórnmálum í Norðurþingi en hlutfall kvenna í stjórnkerfi sveitarfélagsins er mjög lágt þar sem aðeins 2 konur starfa í sveitarstjórn af 9 fulltrúum og í 8 nefndum og ráðum á vegum sveitarfélagsins sitja 7 konur og 35 karlar.

Á kynningarkvöldinu voru haldin nokkur stutt ávörp/erindi. Freydís Jóna Freysteinsdóttir félagsmálastjóri og jafnréttisfulltrúi hélt erindi um stöðu mála hjá Norðurþingi og mikilvægi þess að fá fleiri konur í sveitarstjórn og nefndir. Óli Halldórsson hélt erindi þar sem m.a. kom fram staða kvenna í stjórnmálum í ýmsum löndum.
Fulltrúar hvers stjórnmálaflokks héldu erindi; Olga Gísladóttir frá Sjálfstæðisflokki, Dóra Fjóla Guðmundsdóttir frá Samfylkingu, Kristjana María Kristjánsdóttir frá Framsóknarflokki, og Kolbrún Gunnarsdóttir frá Vinstri Grænum.

Katrín Eymundsdóttir, fundarstjóri hélt að lokum erindi um sína aðkomu að stjórnmálum. Fram kom hjá Katrínu að hún hefði setið fund á áttunda áratugnum sem fjallaði um hið sama og nú, að nauðsynlegt væri að fjölga konum í stjórnmálum. Líflegar umræður sköpuðust á fundinum enda vel mætt af góðum hópi kvenna. Komu m.a. þau sjónarmið fram hjá nokkrum konum að enginn flokkanna samræmdist þeirra viðhorfum nægilega vel. Aðrar konur lögðu á það áherslu að hægt væri að stofna þá eigin flokk eða velja þann flokk sem kæmi næst viðhorfum þeirra. Fram kom hjá þeim konum sem starfa að þær eru mjög ánægðar í því hlutverki, þ.e. að hafa tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri og hafa áhrif á gang mála hjá sveitarfélaginu