Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga

Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga verður haldinn 14. september nk. á Akranesi. Landsfundur jafnréttisnefnda er haldinn árlega og er kjörinn vettvangur fyrir fólk sem vinnur að jafnréttismálum innan sveitarfélaga til að koma saman og ræða helstu þætti jafnréttisstarfsins og kynna sér hvað er efst á baugi í öðrum sveitarfélögum.
Landsfundurinn er opinn fulltrúum í jafnréttisnefndum sveitarfélaga, en einnig eru velkomnir á fundinn fulltrúar þeirra sveitarstjórna sem ekki hafa skipað jafnréttisnefndir.

Nánari dagskrá verður auglýst síðar.

Meira um landsfundi jafnréttisnefnda sveitarfélaga er að finna hér.