Landsfundur um jafnréttismál sveitarfélaga

Árlegur landsfundur um jafnréttismál sveitarfélaga sem fram fór 15. september var með óvenjulegu sniði þetta árið sökum aðstæðna sem öllum eru kunnar. Fundurinn var haldinn í samstarfi Akureyrarbæjar, Jafnréttisstofu og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Áætlað hafði verið að halda fundinn á Akureyri en hann var í staðinn alfarið netfundur og sá Símenntun Háskólans á Akureyri um tæknilega framkvæmd.

Dagskrá fundarins var fróðleg að vanda og var m.a. horft til þeirra fyrirhuguðu breytinga á kynjajafnréttislögum sem kynntar hafa verið í samráðsgátt stjórnvalda. Gestgjafinn Akureyrarbær kynnti mannréttindastefnu sína og helstu áherslur og Jafnréttisstofa kynnti fyrirhugaða útgáfu á gátlistanum Iðkum lýðræðið en hann er ætlaður til nota við skipulagningu viðburða.

Aðalerindi dagsins voru tvö. Fayrouz Nouh kynnti rannsókn sína á arabískum múslímakonum á Íslandi sem búa utan höfuðborgarsvæðisins og Markus Meckl sagði frá rannsókn á kynjuðum áskorunum sem fylgja fólksflutningum.

Að loknum aðalerindunum skiptist hópurinn í vinnustofur þar sem umfjöllunarefnin voru jafnlaunavottun hjá Reykjavíkurborg, áskoranir smærri sveitarfélaga í jafnréttismálum út frá sjónarhóli sveitarstjóra Dalabyggðar auk þess sem fulltrúi ungmennaráðs Akureyrarbæjar ræddi um mikilvægi radda barna í starfi sveitarfélaganna.

Fundurinn var vel sóttur en alls tóku rúmlega 60 manns þátt.

Dagskrá fundarins má sjá hér.