Ljósaganga og samstaða á Akureyri

Í tilefni af alþjóðlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi verður efnt til ljósagöngu og samstöðu á Ráðhústorgi fimmtudaginn 9. desember. Gengið verður með kyndla og kerti frá Akureyrarkirkju kl.16:30.Hópar og samtök um allan heim hafa nýtt 16 daga átakið til að krefjast aðstoðar og stuðnings til handa brotaþolum, til að styrkja forvarnastarf og þrýsta á um breytingar á löggjöf til að bæta réttarstöðu þeirra. Þá hefur átakið verið nýtt til að stuðla að því að alþjóðlegum mannréttindareglum sé beitt til að vinna gegn kynbundu ofbeldi sem mannréttindabroti, heilbrigðisvandamáli og ógn við mannfrelsi og frið um allan heim.
 
Margt hefur áunnist undanfarin ár í baráttu gegn kynbundnu ofbeldi; íslensk stjórnvöld hafa gert ítarlega aðgerðaáætlun gegn ofbeldi á heimilum og kynferðisofbeldi og aðgerðaáætlun gegn mansali. Brýnt er að fyrirhugaður niðurskurður hins opinbera bitni ekki á framkvæmd þessara áætlana því vitað er að efnahagsþrengingar geta leitt til aukins kynbundins ofbeldis og bitna oft harðar á konum.

Á Ráðhústorgi verður flutt stutt ávarp, ljóðalestur og sönghópurinn Ungar raddir syngur nokkur lög.

Þau sem standa að ljósagöngunni og samstöðunni eru:

Samfélags- og mannréttindaráð Akureyrarbæjar
Jafnréttisstofa
Aflið – samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi
Zontaklúbburinn Þórunn Hyrna
Zontaklúbbur Akureyrar
Soroptimistaklúbbur Akureyrar
Norðurlandsdeild Ljósmæðrafélags Íslands
Norðurlandsdeild Hjúkrunarfélags Íslands