Málþing á vegum Félagsfræðingafélags Íslands

Vakin er athygli á því að fimmtudaginn 28. apríl nk. heldur Félagsfræðingafélag Íslands morgunverðarfund þar sem þrír félagsvísindamenn kynna nýjar rannsóknir sínar um málefni fjölskyldunnar. Yfirskrift morgunverðarfundarins er: Er foreldrahlutverkið hindrun í atvinnulífinu - jafnvel fyrir pabba?