Málþing um kyn og loftslagsbreytingar

Föstudaginn 5. febrúar verður málþingið Kyn og loftslagsbreytingar haldið í Háskóla Íslands, stofu 101 Lögbergi, kl. 14.30-16.45.Samstarfsaðilar um málþingið eru Jafnréttisstofa, Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum, EDDA - öndvegissetur og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar.

Á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar sem haldin var í Kaupmannahöfn í desember 2009 var Ísland heiðrað sérstaklega fyrir að halda kynjasjónarhorni á lofti í þeim samningaviðræðum sem þar áttu sér stað. Margir spyrja sig hvað kynjasjónarmið koma baráttunni gegn óæskilegum loftslagsbreytingum við. Svarið er þríþætt: Í fyrsta lagi hegða kynin sér misjafnlega og hafa mismunandi áhrif á umhverfið. Konur sem neytendur og stjónendur neyslu heimlanna geta haft önnur og meiri áhrif en karlar til að draga úr notkun óæskilegra efna. Í öðru lagi hefur komið í ljós að konur greiða hamfarir sem dunið hafa á jarðarbúum mun dýrara verði en karlar, jafnvel með lífinu sjálfu. Í þriðja lagi blasir við sú staðreynd að á meðan loftslagsbreytingarnar varða líf og framtíð bæði kvenna og karla eru það fyrst og fremst karlar sem sitja við samningaborðin og móta framtíðarstefnu mannkyns. Á málþinginu verður fjallað um ýmsar hliðar umræðunnar um loftslagsbreytingar út frjá kynjasjónarhorni, frá heimskautsbaug til heitra Afríkulanda. Að loknum erindum verða pallborðsumræður.

Dagskrá:

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra flytur ávarp

Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu
„Kynjavíddir í alþjóðlegri umræðu um loftlagsbreytingar"

Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent í guðfræðilegri siðfræði
„Loftslagsbreytingar í guðfræðilegri siðfræði: Femínísk orðræða um lífvænan náttúruskilning"

Anna Karlsdóttir, lektor í mannvistarlandfræði og ferðamálafræði
„Strandbyggðir á Norðurslóðum"

Magnfríður Júlíusdóttir, lektor í mannvistarlandfræði.
„Loftslagsbreytingar og kynjuð þróunarorðræða um Afríku: Gamalt stef í nýjum umbúðum?"

Pallborðsumræður

Málþingið er öllum opið