Mansal á Íslandi – viðbrögð?


Málþingið hefst með sýningu á Lilju í Rýminu kl. 15.00. Að henni lokinni, um kl. 17.20 hefjast framsöguerindi í Ketilhúsinu og eftir veitingahlé verða pallborðsumræður frá kl. 18.30.

Ragna Árnadóttir, dóms- og mannréttindamálaráðherra flytur framsögu ásamt Margréti Steinarsdóttur framkvæmdastjóra Alþjóðahúss, Guðrúnu Jónsdóttur forstöðukonu Stígamóta og Fríðu Rós Valdimarsdóttur mannfræðingi og höfundi skýrslunnar Líka á Íslandi.

Tilkynna þarf þátttöku í málþinginu fyrir kl.12 á hádegi mánudaginn 16. nóvember í miðasölu leikfélagsins í síma 4 600 200 eða kaupa miða á atburðinn á www.leikfelag.is  þátttökugjald er 1.000.- kr. Einnig er hægt að mæta eingöngu á málþingið, sem hefst 17.20.