Meinlaust heldur áfram

Vitundarvakningin Meinlaust er nú í gangi og í þetta sinn er hún í samstarfi við Samtökin 78. Henni er ætlað að vekja athygli á birtingarmyndum öráreitni sem hinsegin fólk verður fyrir í samfélaginu og fá fólk til að opna augun fyrir afleiðingum sem öráreitni hefur í för með sér.

Öráreitni er hugtak sem notað er yfir hversdagslegar athafnir, athugasemdir eða umhverfisþætti sem eru niðrandi eða niðurlægjandi fyrir fólk sem tilheyrir jaðarsettum hópum. Hver athöfn, umhverfisþáttur eða athugasemd er ef til vill ekki stórvægileg ein og sér en þegar jaðarsett fólk finnur fyrir slíku reglulega, jafnvel daglega, eykur það álagið sem það verður fyrir samfélagsstöðu sinnar vegna og gerir það jaðarstöðuna áþreifanlega.

Öráreitni er jafnvel stundum ætlað sem hrós og eru þau sem láta slíkt út úr sér jafnvel ómeðvituð um afleiðingarnar. Þess vegna getur verið erfitt að koma auga á öráreitni og jafnvel erfiðara að benda gerendum á að hegðun þeirra hafi skaðleg áhrif.

Í vitundarvakningunni eru sagðar sögur sem byggðar eru á raunverulegum frásögnum fólks úr íslensku samfélagi í formi myndasagna. Áhersla er lögð á samfélagsmiðla þar sem fólk er hvatt il að taka þátt í umræðunni og deila eigin reynslu undir myllumerkinu #meinlaust eða með því að merkja @meinlaust.

Við erum hvergi nærri hætt. Næsta #meinlaust mun vera í samstarfi við Þroskahjálp þar sem fjallað verður um þá öráreitni sem fatlað fólk verður fyrir í daglegu lífi. Síðasta #meinlaust í bili verður svo á vordögum í samstarfi við Hennar rödd þar sem kynþáttafordómar gagnvart erlendum konum verða í brennidepli.

Það breytist ekkert ef við lokum augunum fyrir öráreitni. Opnum augun og stöndum saman!