Myndbandsupptökur frá ráðstefnu í tilefni 100 ára kosningaréttar kvenna

Í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna var efnt til alþjóðlegrar hátíðarráðstefnu í Hörpu dagana 22.-23. október 2015. Ráðstefnan var tekin upp og nú eru erindi og annað efni aðgengilegt á Youtube-rás Hugvísindasviðs Háskóla Íslands.Fyrri daginn var sjónum beint að baráttunni fyrir almennum kosningarétti og þróun borgaralegra réttinda kvenna á þeim hundrað árum sem liðin eru frá því að konur hlutu kjörgengi og kosningarétt á Norðurlöndum. Síðari daginn var leitast við að svara þeirri spurningu hvaða ógnir steðji að borgaralegum réttindum kvenna í dag. Ráðstefnan var haldin í Hörpu og er bæði almenns og fræðilegs eðlis og fór fram á ensku.

Myndbandalisti með upptökum frá ráðstefnunni á Youtube: Alþjóðleg ráðstefna í tilefni af aldarafmæli kosningaréttar kvenna.

 Dagskrá ráðstefnunnar og allar frekari upplýsingar eru aðgengilegar hér: Borgaraleg réttindi kvenna í 100 ár. Alþjóðleg ráðstefna í tilefni af aldarafmæli kosningaréttar kvenna.