Námsstyrkir til einstæðra mæðra

Menningar- og minningarsjóður kvenna úthlutar styrk úr sjóðnum í haust og hefur sjóðurinn auglýst eftir styrkumsóknum. Að þessu sinni verður styrkurinn veittur einstæðum mæðrum, 25 ára og yngri, sem hyggjast stunda nám á komandi vetri. Einkum verður litið til þeirra sem eru á leið í nám á ný eftir nokkurt hlé.
Styrkurinn nemur einni milljón króna og áskilur stjórn MMK sér rétt til að úthluta fénu í einu lagi eða deila því á milli tveggja til þriggja kvenna. Með umsókninni þarf að fylgja stutt greinargerð um það hvers vegna óskað er eftir styrk, auk eftirfarinna atriða:

• Hjúskaparstaða og fjöldi barna
• Hvenær umsækjandi var síðast í námi og við hvaða menntastofnun
• Hvaða nám er ætlunin að stunda
• Hvort umsækjandi er í leiguhúsnæði eða eigin húsnæði
• Annar stuðningur (t.d. opinberir styrkir)

Einnig þarf að fylgja umsókninni skattframtal fyrir árið 2007 og staðfesting á skólavist. Umsóknarfrestur er til 25. september.

Umsóknareyðublað má finna á heimasíðu KRFÍ.