Nefnd um aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi

Í fréttatilkynningu frá félags- og tryggingamálaráðuneyti kemur fram að Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað nefnd um gerð nýrrar aðgerðaáætlunar stjórnvalda gegn kynbundnu ofbeldi fyrir árin 2011-2015. Gildandi aðgerðaáætlun var samþykkt árið 2006 og hefur meginþungi hennar falist í viðamiklum rannsóknum á eðli og umfangi ofbeldis karla gegn konum í nánum samböndum. Í nýrri aðgerðaáætlun verður sérstök áhersla lögð á að skoða samhengi kynbundinna ofbeldisbrota, saksóknar vegna þeirra og meðferðar í dómskerfinu, en sem kunnugt er fara afar fá mál af þessum toga alla leið í gegnum dómskerfið. Auk þessa þarf að móta afstöðu til meðferðar nýs sáttmála Evrópuráðsins í málaflokknum og endurskilgreina verkefni með hliðsjón af honum og verður það hluti af verkefnum nefndar um gerð nýrrar aðgerðaáætlunar.

Nefndina skipa:

Höskuldur Sæmundsson, skipaður af félags- og tryggingamálaráðherra, formaður
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann, skipuð af félags- og tryggingamálaráðherra
Thelma Þórðardóttir, tilnefnd af dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu
Gunnar Alexander Ólafsson, tilnefndur af heilbrigðisráðuneytinu
Kristín Ástgeirsdóttir, tilnefnd af Jafnréttisstofu
Jón H.B. Snorrason, tilnefndur af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu
Hulda Elsa Björgvinsdóttir, tilnefnd af ríkissaksóknara
Tryggvi Þórhallsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Sigþrúður Guðmundsdóttir, tilnefnd af Samtökum um kvennaathvarf
Guðrún Jónsdóttir, tilnefnd af Stígamótum