- Samfélag og einstaklingar
- Vinnumarkaður
- Þjónustugátt
Ráðherranefnd Evrópuráðsins samþykkti, í gær, 4. mars 2026 ný tilmæli um ábyrgð vegna stafræns ofbeldis gegn konum og stúlkum (Recommendation CM/Rec(2026)2). Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu, gegndi hlutverki varaformanns fjölþjóðlegrar sérfræðinganefndar sem vann að mótun tilmælanna.
Tilmælin veita aðildarríkjum leiðsögn um hvernig styrkja megi lagaleg, stofnanaleg og reglubundin viðbrögð við stafrænu ofbeldi gegn konum og stúlkum. Slík ábyrgð felur ekki aðeins í sér viðbrögð eftir að brot hafa átt sér stað heldur einnig fyrirbyggjandi aðgerðir og forvarnir sem stuðla að samfélagi þar sem slíkt ofbeldi er hvorki auðveldað, umborið, réttlætt né látið óátalið.
Tilmælin eru fyrsta alþjóðlega regluverkið sem beinir sjónum að ábyrgð vegna stafræns ofbeldis gegn konum og stúlkum. Tilmælin byggja á fyrri alþjóðlegum viðmiðum, þar á meðal Istanbúl samningi Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi.
Tilmælin verða kynnt formlega á alþjóðlegum viðburði í Palais de l’Europe í Strassborg 10. júní 2026 undir yfirskriftinni From standards to action: making accountability for technology-facilitated violence against women and girls a reality. Á viðburðinum verður fjallað um næstu skref í innleiðingu tilmælanna og hvaða aðgerðir ólíkir aðilar, þar á meðal stjórnvöld, saksóknarar, lögregla, eftirlitsaðilar, tæknifyrirtæki og frjáls félagasamtök, geta gripið til í starfi sínu.
Hægt er að skrá sig á viðburðinn hér:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSdUgmgA3KewNW5pIlpLiY7kysWR65vugFnwepmxux4TzrxQAw/viewform