Nýir tímar - breytt hagstjórn

Jafnréttisstofa býður til ráðstefnu um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð mánudaginn 14. febrúar kl. 13:00 á Hilton Hótel Nordica. Ráðstefnan ber yfirskriftina Nýir tímar - breytt hagstjórn. Aðal fyrirlesari verður Diane Elson einn helsti sérfræðingur heims á þessu sviði auk þess mun verkefnastjórn um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð kynna starf sitt og tvö tilraunaverkefni á hennar vegum verða kynnt.
Dagskrá ráðstefnunnar má finna hér.

Diane Elson er prófessor við Essex Háskóla í Bretlandi og einn helsti sérfræðingur í kynjaðri hagstjórn og fjárlagagerð. Hún starfar með The Women‘s Budget Group sem er sjálfstæður hópur sérfræðinga úr akademíu, frá frjálsum félagssamtökum og stéttarfélögum. Markmið The Women‘s Budget Group er að stuðla að auknu jafnrétti kynja með því að leggja mat á efnahagsstefnur og áætlanagerð. Einnig hefur Diane Elson starfað fyrir UNIFEM bæði í höfuðstöðvum þeirra í New York og sem ráðgjafi víða um heim. Meðal annars kom hún að fjárlagagerð í Suður-Afríku eftir að tíma aðskilnaðarstefnunnar lauk. Hún hefur verið iðin við skriftir og rannsóknir og hefur samið leiðbeiningar, um framkvæmd kynjaðrar hagstjórnar og fjárlagagerðar. Erindi Diane Elson fer fram á ensku en önnur dagskrá er á íslensku.

Dagskráin er hluti af verkefninu Samstíga enJafnréttisstofa hlaut styrk til að standa straum af verkefninu úr PROGRESS-sjóði ESB (sjá: www.samstiga.is). Markmið þess er að auka þekkingu á samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða í opinberri stjórnsýslu auk þess að stuðla að því að hún verði nýtt í opinberri stefnumótun og ákvarðanatöku í samræmi við 17. grein jafnréttislaga nr. 10/2008.