Nýtt jafnréttisráð

Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra hefur skipað nýtt Jafnréttisráð samkvæmt lögum og er skipunartíminn til næstu alþingiskosninga. Formaður Jafnréttisráðs er Magnús Geir Þórðarson og varaformaður Tinna Traustadóttir.

Ráðherra átti fund með Magnúsi Geir og Tinnu í kjölfar skipunar ráðsins þar sem þau ræddu um verkefnin framundan. Ráðherra gerði að umtalsefni hvað mikilvægi Jafnréttisráðs eykst stöðugt og ræddi um að aukin áhersla á jafnréttismál í velferðarráðuneytinu kalli á mikla virkni ráðsins á næstu misserum:  „Ég er mjög þakklátur því frábæra fólki sem hefur tekið að sér að leiða starf ráðsins á þessu kjörtímabili og spenntur fyrir samstarfinu framundan“ segir Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttisráðherra.

Félags- og jafnréttismálaráðherra skal í kjölfar alþingiskosninga skipa ellefu manna Jafnréttisráð samkvæmt 8. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008. Ráðið skal starfa í nánum tengslum við Jafnréttisstofu og vera ráðherra og framkvæmdastjóra Jafnréttisráðs til ráðgjafar við stefnumótun í málum sem tengjast jafnrétti kynjanna. Sérstök áhersla skal lögð á að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði og samþættingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Þá skal Jafnréttisráð undirbúa jafnréttisþing í samráði við ráðherra og leggja fyrir það skýrslu um störf sín. Jafnréttisþing skal boða innan árs frá alþinigskosningum og aftur að tveimur árum liðnum.

Jafnréttisráð er svo skipað:

Aðalmenn
Magnús Geir Þórðarson, skipaður án tilnefningar, formaður
Maríanna Traustadóttir, tiln. af Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna og Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
Þórunn Sveinbjarnardóttir, tiln. af Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna og Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
Pétur Reimarsson, tiln. af fjármálaráðuneyti og Samtökum atvinnulífsins
Einar Mar Þórðarson, tiln. af fjármálaráðuneyti og Samtökum atvinnulífsins
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, tiln. af Samtökum um kvennaathvarf og Stígamótum
Kristín I. Pálsdóttir, tiln. af Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum
Hróðmar Dofri Hermannsson, tiln. af Félagi um foreldrajafnrétti
Anna Guðrún Björnsdóttir, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Guðrún Þórðardóttir, tiln. af Femínistafélagi Íslands, Kvenfélagasambandi Íslands og Kvenréttindafélagi Íslands
Tatjana Latinovic, tiln. af Femínistafélagi Íslands, Kvenfélagasambandi Íslands og Kvenréttindafélagi Íslands

 Varamenn

Tinna Traustadóttir, án tilnefningar, varaformaður
Jóhann R. Sigurðsson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna og Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
Hlöðver Sigurðsson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna og Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
Kristín Þóra Harðardóttir, tiln. af fjármálaráðuneyti og Samtökum atvinnulífsins
Halldóra Friðjónsdóttir, tiln. af fjármálaráðuneyti og Samtökum atvinnulífsins
Sigþrúður Guðmundsdóttir, tiln. af Samtökum um kvennaathvarf og Stígamótum
Kristinn Schram, tiln. af Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum
Guðný S. Bjarnadóttir, tiln. af Félagi um foreldrajafnrétti
Bjarni Ómar Haraldsson, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, tiln. af Femínistafélagi Íslands, Kvenfélagasambandi Íslands og Kvenréttindafélagi Íslands
Una Hildardóttir, tiln. af Femínistafélagi Íslands, Kvenfélagasambandi Íslands og Kvenréttindafélagi Íslands