Opinn fundur um samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs

Föstudaginn 12. apríl boðar vinnuhópur um samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs til opins fundar í nafni Velferðarráðuneytisins, Jafnréttisráðs og Jafnréttisstofu. Fundurinn verður haldinn á Hótel KEA á Akureyri og stendur frá klukkan 13:00 - 16:00. Á fundinum verður meðal annars fjallað um það hvernig fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög geta unnið með samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs og stuðlað að fjölskylduvænni vinnustað og eða samfélagi.
Dagskrá fundarins

13:15 Fundur settur.

13:25 Þóra Kristín Þórsdóttir, aðferðafræðingur.
Kynbundin verkskipting á Íslandi.

13:45 Gyða Margrét Pétursdóttir,aðjúnkt í kynjafræði við Stjórnmálafræðideild HÍ.
Stjórnandinn: Jákvæður með bundið fyrir bæði eða meðvitaður bjartsýnisalki?

14:10 Erla B. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri SÍMEY.
Hvernig standa má að fræðslu fyrir launþega og atvinnurekendur.

14:20 Ragnheiður Eyjólfsdóttir MSc nemi í OBTM við HR.
Fyrstu niðurstöður rannsóknar á því hvernig þátttakendum á vinnumarkaði
finnst þeim takast að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf.

14:40 Baldur G. Jónsson, mannauðsstjóri Landsbankans.
Landsbankinn, - fyrirmyndar vinnustaður.

14:55 Helga Erlingsdóttir, hjúkrunarforstjóri á Hlíð dvalarheimili aldraðra.
Listin að lifa: Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs.

15:15 Björn Þorláksson, faðir með meiru.
Kynhlutverkahyggja – ræður hún skörun atvinnu og fjölskyldulífs?
Nokkur orð um mun á eldavél og útigrilli.

15:30 Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Akureyrarbæjar.
Akureyri öll lífsins gæði, - hvað getum við gert til að skapa fjölskylduvænna samfélag?

15:45 Þórður Kristinsson, formaður vinnuhópsins.
Kynnir greinagerð til velferðarráðherra um framkvæmd verkefna
og aðgerðir vinnuhóps um samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs.

16:00 Fundi slitið.


Skráning fer fram á heimasíðu Velferðarráðuneytisins www.vel.is/skraning 
 
Nánari upplýsingar á Jafnréttisstofu arnfridur@jafnretti.is eða í síma 460-6205.

Boðsbréf á fundinn