Örugg í vinnunni?

Alþýðusamband Íslands, BHM, BSRB, Kennarasamband Íslands, Jafnréttisstofa og Jafnréttisráð efna til hádegisverðarfundar þriðjudaginn 8. mars 2016 þar sem fjallað verður um kynbundna og kynferðislega áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.
Erindi:
•Kynbundin og kynferðisleg áreitni á vinnustað - Sonja Ýr Þorbergsdóttir, lögfræðingur BSRB.
•Kynbundið vald og vinnumarkaðurinn - Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands.
•Er kynferðisleg áreitni óhjákvæmileg? - Finnborg Salome Steinþórsdóttir, doktorsnemi í kynjafræði við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
•Fundarstjóri verður Laufey E. Gissurardóttir, formaður Þroskaþjálfafélags Íslands.

Fundurinn er haldinn í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna 8. mars. Boðið verður upp á hádegisverð og kostar hann 2.500 krónur. 


Hvar og hvenær: Hvammur, Grand Hótel Reykjavík kl. 11.45 til 13.00 þriðjudaginn 8. mars.