Ráðstefna um samning Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi

Sendinefnd frá Íslandi sótti ráðstefnu á vegum finnska þingsins og utanríkiráðuneytisins og Evrópuráðsins í Helsinki sem haldin var 17. janúar sl. Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra fór fyrir sendinefndinni sem samanstóð af Kristínu Ástgeirsdóttur, framkvæmdastýru Jafnréttisstofu, Margréti Steinarsdóttur, framkvæmdastjóra Mannréttindaskrifstofu Íslands, og Maríu Rún Bjarnadóttur, sérfræðingi innanríkisráðuneytisins í mannréttindamálum. Þuríður Backman alþingismaður sótti einnig fundinn fyrir hönd þingmannanefndar Evrópuráðsins.Á ráðstefnunni var fjallað um nýlegan samning Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi, svokallaðan Istanbúl samning, en samningurinn var undirritaður í mars 2011, meðal annars af fulltrúum Íslands.
Tyrkland hefur eitt ríkja fullgilt samninginn, sem tekur fyrst gildi þegar tíu ríki hafa fullgilt hann.

Fulltrúar Evrópuráðsins, þingmannanefndar Evrópuráðsins, finnskra stjórnvalda, UN Women auk fræðimanna, sérfræðinga og stjórnmálamanna frá Danmörku, Eistlandi, Finnlandi, Þýskalandi, Litháen, Lettlandi, Póllandi, Rússlandi og Svíþjóð ræddu efni samningsins og mikilvægi hans fyrir ríki sem vilja koma í veg fyrir ofbeldi á konum.

Innanríkisráðuneytið fjármagnaði sl. haust yfirgripsmikla úttekt á efni Istanbúl samningsins og aðlögun íslenskra laga og reglna svo að fullgilda mætti samninginn. Mannréttindastofnun Háskóla Íslands annaðist úttektina. Ráðuneytið vinnur nú að úrvinnslu niðurstaðna úttektarinnar með fullgildingu samningsins að leiðarljósi og óskar eftir athugasemdum og ábendingum á grundvelli hennar í tilefni þessa fyrir 10. febrúar næstkomandi.

Þessi frétt er tekin af heimasíðu innanríkisráðuneytisins en þar má nálgast frekari upplýsingar um ráðstefnuna og lesa ræðu Höllu Gunnarsdóttur.
Einnig má lesa um samninginn og  helstu innlegg á ráðstefnunni í grein Kristínar Ástgeirsdóttur hér á heimasíðu Jafnréttisstofu.