Ráðstefnan Mál og kyn

10. norræna ráðstefnan um mál og kyn verður haldin í Háskólanum á Akureyri dagana 20.-21. október 2017. Ráðstefna þessi er nú haldin í fyrsta sinn á Íslandi en hún er helsti vettvangur norræns fræðafólks til fræðilegrar umræðu á þessu sviði rannsókna.

Ráðstefnan á rætur sínar innan málvísinda og hefur þannig einkum höfðað til þeirra sem fást með einum eða öðrum hætti við mál og kyn innan ramma félagslegra málvísinda, orðræðu- og/eða samtalsgreiningar, mállýskufræða, málsögu eða annarra greina málvísinda, en hún er þó ekki síður opin fræðafólki sem nálgast þetta efni frá sjónarhóli félagsfræði, kynjafræði, bókmenntafræði, menntunarfræði og fleiri greina.

Aðalfyrirlesarar:

  • Helga Hilmisdóttir, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
    Gender and Personal Pronouns in Icelandic Debates and Conversations
  • Jón Ingvar Kjaran, Háskóla Íslands
    “Fag, dude, dyke, fat or hot”. Word prevalence among high school students in terms of gender/sexual stereotypes
  • Kristina Fjelkestam, Stockholms universitet, Svíþjóð
    "How I Learned to Love the Bomb": Peirce and Feminist Semiotics
  • Stina Ericsson, Linnéuniversitetet, Svíþjóð
    Sustaining and Challenging Gender and Sexuality Norms:Cis, Hetero, and Family Normativities in Children's Interactions

Erindi: Gert er ráð fyrir að erindi taki 20 mínútur í flutningi og síðan gefast 10 mínútur til umræðna.

Útdrættir: Vinsamlegast sendið inn útdrætti (hámark 300 orð) fyrir 30. maí 2017.

Senda inn útdrátt

Tillögur að málstofum: Sendist fyrir 30 maí á netfangið; finnurf@unak.is

Mál: Erindin skulu flutt á dönsku, norsku, sænsku eða ensku.

Undirbúningsnefnd: Andrea Hjálmsdóttir, Brynhildur Þórarinsdóttir, Finnur Friðriksson, Kristín Ástgeirsdóttir, Kristín Margrét Jóhannsdóttir.

Tengiliður: Varðandi nánari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við Finn Friðriksson, dósent við kennaradeild;finnurf@unak.is.

Opið fyrir skráningu: Skráningargjaldið er 30.000 isk til 1. ágúst 2017. Frá og með 2. ágúst hækkar ráðstefnugjaldið í 37.500 isk.
Skráningargjald fyrir nemendur er 15.000 isk.

Innifalið í skráningunni eru ráðstefnugögn, morgun- og síðdegiskaffi og hádegismatur.

Boðið verður upp á 2ja rétta ráðstefnukvöldverð í  Menningarhúsinu Hofi en hann er ekki innifalinn í ráðstefnugjaldinu.
Verð: 6.900 kr.  

Hægt er að skrá sig og sjá allar nánari upplýsingar með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan:

Skráning
 

Sjá upplýsingar á sænsku og ensku