Ráðstefnur um hlutastörf, jafnlaunamál og jafnrétti á vinnumarkaði 12. og 13. nóvember 2014

 Ísland fer í ár með formennsku í starfi norrænu ráðherranefndarinnar og leggur í samræmi við stefnu Norrænu ráðherranefndarinnar í jafnréttismálum meðal annars áherslu á jafnrétti á vinnumarkaði og mun þannig halda áfram á þeirri braut sem mörkuð var af Norðmönnum og Svíum á árunum 2012 og 2013. Mörg verkefni og rannsóknir um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla á vinnumarkaði eru í burðarliðnum og verða þau kynnt á formennskuárinu.  Formennskuárið er einnig nýtt til að efla umræður meðal norrænna stjórnvalda um árangursríkar leiðir til að jafna stöðu karla og kvenna á vinnumarkaði og um hvaða aðgerðir hafa gefið góða raun til að draga úr kynbundnum launamun. Þá er lögð áhersla á kynningu rannsókna um stöðu kvenna og karla á vinnumarkaði.
Í nóvember verða haldnar tvær samliggjandi ráðstefnur um jafnlauna- og vinnumarkaðsmál. Norræna rannsóknarverkefninu Hlutastörf, kyn og og dreifing tekna (s. Deltid, kön och ekonomisk fördeling) lauk  um mitt ár 2014 og verða niðurstöður þess kynntar á ráðstefnu um hlutastörf og áhrif þeirra á jafnrétti á vinnumarkaði þann 12. nóvember.  Daginn eftir, þann 13. nóvember, mun norrænn starfshópur um launjafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði, í samstarfi við aðgerðahóp íslenskra stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launajafnrétti, halda ráðstefnu um jafnlaunamál og jafnrétti á vinnumarkaði. 

Á ráðstefnunum munu margir erlendir og hérlendir sérfræðingar halda erindi og taka þátt í pallorðsumræðum um brennandi spurningar sem snúa að jafnrétti kvenna og karla á vinnumarkaði.  Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar þann 13. nóvember eru Dr. Daniela Bankier yfirmaður jafnréttismála hjá framkvæmdastjórn  Evrópusambansins og Dr. Helga Aune, lögfræðingur framkvæmdastjóri hjá PricewaterHouse Coopers í Noregi.   

Upplýsingar um skráningu og dagskrá eru aðgengilegar á slóðinni: www.radstefna.is