Rannsóknarmiðstöð gegn ofbeldi formlega stofnuð á Akureyri

Rannsóknarmiðstöð gegn ofbeldi, var formlega stofnuð í Háskólanum á Akureyri þann 21. febrúar sl. Markmið stöðvarinnar er að útrýma öllu ofbeldi, einkum gegn börnum og ofbeldi í nánum samböndum, m.a. með samvinnu við samsvarandi stofnanir og félög hérlendis og erlendis og með því að standa fyrir ráðstefnum og málþingum til að útbreiða þekkingu á ofbeldi og afleiðingum þess. Rannsóknarmiðstöðin mun standa fyrir fjölbreyttri útgáfu til að efla þekkingu á ofbeldi og leiðum til að útrýma því og halda úti heimasíðu, ofbeldi.is þar sem áhugasamir geta náð á einum stað í rannsóknarniðurstöður og fræðsluefni um ofbeldi.  Einnig mun miðstöðin standa fyrir námskeiðum um ofbeldi fyrir ýmsa hópa og veita styrki til rannsókna á ofbeldi.
Í framkvæmdanefnd Rannsóknarmiðstöðvar gegn ofbeldi sitja þau Ágúst Þór Árnason, brautarstjóri grunnnáms í lagadeild HA, dr. Sigríður Halldórsdóttir, prófessor við HA og Sigrún Sigurðardóttir, PhD (Cand), hjúkrunarfræðingur hjá Starfsendurhæfingu Norðurlands en hún er jafnframt forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar gegn ofbeldi. Í stjórn miðstöðvarinnar sitja svo 14 fulltrúar.