Rástefnan Æskan - rödd framtíðar

Ráðstefnan Æskan- rödd framtíðar verður haldin á Hótel Hilton Nordica í Reykjavík dagana 28. - 29. október 2010. Á ráðstefnunni verða kynntar niðurstöður samanburðarrannsóknar sem var framkvæmd á síðasta ári meðal norrænna ungmenna á aldrinum 16-19 ára, á öllum Norðurlöndunum þ.m.t. Færeyjum Grænlandi og á Álandseyjum.

Kynningu á niðurstöðum rannsóknarinnar verður fylgt eftir með málstofum og umræðum þar sem stjórnmálamenn, fræðimenn og aðrir sem tengjast ungu fólki munu fjalla um hvernig á að halda áfram að vinna að framkvæmd núverandi stefnu og hvernig hægt er að auðvelda aukna samvirkni á milli stefnu og aðgerða Norðurlanda í málefnum ungmenna.

Skráningarform og frekari upplýsingar má finna á heimasíðu ráðstefnunnar.