Sendiherra flytur erindi í Kvennaháskóla Kína

Kristín A. Árnadóttir sendiherra flutti erindi um kynjajafnrétti og stöðu jafnréttismála á Íslandi í Kvennaháskóla Kína (China Women’s University) í Peking í lok maí. Fyrirlesturinn var upphaf fundaraðar í háskólanum með fulltrúum erlendra ríkja. Fyrirlesturinn fór fram í hátíðarsal skólans og voru um 400 nemendur, kennarar og aðra gestir viðstaddir.

Mikill áhugi er í Kína á jafnréttismálum og á Íslandi almennt. Í fyrirlestrinum var fjallað um stefnumörkun íslenskra stjórnvalda á sviði kynjajafnréttis og aðferðum og árangri kvenfrelsisbaráttu á Íslandi. Einnig voru til umræðu áhrif fyrstu kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem haldin var árið 1995 í Peking. Góðar umræður spunnust í kjölfarið og spurðu nemendur við skólann m.a. um samskipti kynjanna, leiðtogahæfileka og þjálfun kvenna og Norðurslóðasamstarf.

Kvennaháskólinn er sá elsti og þekktasti sinnar tegundar í landinu og sérhæfir sig í menntun kvenna á háskólastigi og rannsóknum í kvenna- og kynjafræði og tengdum greinum. Um 5500 nemendur eru við skólann, þar af 95% konur. Fundarstjóri var aðstoðarrektor skólans, prófessor Li Mingshun.

Fyrirlestur Kristínar A. Árnadóttur