Setjum upp kynjagleraugun

Á föstudag og laugardag selja Skottur kynjagleraugun. Ágóðanum verður varið til þess að efla þjónustu við fólk sem beitt hefur verið kynferðisofbeldi.Markmið Skottanna er að breyta Stígamótum í sólarhringsmiðstöð. Auk bættrar ráðgjafarþjónustu verður opnað athvarf fyrir konur sem vilja brjótast út úr vændi og mansali. Jafnframt mun verkefnið Stígamót á staðinn verða endurvakið utan höfuðborgarsvæðisins. Akureyringar styðja Aflið og Vestfirðingar Sólstafi. Kynjagleraugun verða seld í flestum verslunarkjörnum um land allt.

Auglýsing í pdf