SEXAN Stuttmyndasamkeppni

Ert þú í 7. bekk? Búðu til stuttmynd um slagsmál, tælingu, samþykki eða nektarmynd sem verðu sýnd á UngRÚV í febrúar.

Sexan | Stuttmyndkeppni from Menntamálastofnun on Vimeo.

Sexan er stuttmyndasamkeppni fyrir nemendur í 7. bekk sem ætlað er að fræða ungt fólk um mörk og samþykki en einnig um tilurð, birtingarmyndir og afleiðingar stafræns ofbeldis. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar Fjölmiðlanefndar um nektarmyndir á meðal grunnskólabarna kemur fram að 51% stúlkna og 22% drengja hafa verið beðin um nektarmynd.

Fyrirkomulag Sexunnar er einfalt. Þátttakendur fá́ fræðslu og tækifæri til að búa til og skila inn tilbúinni stuttmynd (hámark 3 mínútur) á tímabilinu 10.-21. janúar 2023. Viðfangsefni keppninnar eru fjórar birtingarmyndir stafræns ofbeldis: samþykki, nektarmynd, tæling eða slagsmál ungmenna.

Þátttakendur hafa frjálsar hendur með handritagerð, framkvæmd og eftirvinnslu. Hver skóli má senda að hámarki þrjár myndir í keppnina en dómnefnd skipuð fulltrúum ungmennaráðs, RÚV, MMS og kvikmyndagerðar velur svo þrjár bestu stuttmyndirnar sem verða sýndar á vef UngRÚV í viku sex, kynfræðsluvikunni 6.-10. febrúar nk.

Að samkeppninni standa Jafnréttisstofa, Neyðarlínan, Ríkislögreglustjóri, Menntamálastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga, Barna- og fjölskyldustofa, Jafnréttisskóli Reykjavíkur, Fjölmiðlanefnd, og RÚV.

Við hvetjum ykkur eindregið til að taka þátt og festa þannig viðburðinn í sessi sem árlegan, skapandi vettvang til að takast á við stafrænt ofbeldi á meðal ungmenna. Nánari upplýsingar um keppnina má finna á heimasíðu Neyðarlínunnar.