Staða jafnlaunavottunar

Skrifstofa jafnréttismála í forsætisráðuneytinu lét nýlega gera könnun meðal þeirra 76 fyrirtækja sem höfðu öðlast jafnlaunavottun fyrir 30. apríl sl.

Þetta kemur fram í frétt á vef forsætisráðuneytisins. Þar segir m.a.:

Niðurstöður eru mjög jákvæðar og rúmlega 81% svarenda voru fremur eða mjög ánægð með jafnlaunavottunina og að hafa innleitt jafnlaunastaðalinn. Flestir svarenda notuðu niðurstöður launagreiningar til úrbóta á jafnlaunakerfinu. 

Alls leiðréttu 60% svarenda laun starfsfólks sem mældust of lág og 11% leiðréttu laun hópa sem mældust of lág. 

Þriðjungur svarenda mældi fleiri jafnréttisþætti en til var ætlast af jafnlaunastaðlinum, s.s. fjölda kvenstjórnenda, skipan í stjórnir og nefndir, kynjahlutfall í starfaflokkun, endurmenntun o.s.frv. Það sýnir því áþreifanlegan árangur af innleiðingu staðalsins fyrir jafnrétti innan fyrirtækja. 

Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar reyndust flokkun starfa, gerð verklagsreglna, tímaskortur og vottunarferli mest íþyngjandi í ferlinu en kostnaður við ferlið var ekki mjög íþyngjandi þáttur.

Alls hafa 86 fyrirtæki og stofnanir öðlast jafnlaunavottun, þar af 43 með fleiri en 250 starfsmenn. Fyrir næstu áramót skulu 232 fyrirtæki og stofnanir öðlast jafnalunavottun. 
Ráðherrar munu hvetja stofnanir sínar til að ljúka ferli við jafnlaunavottun innan lögbundins frests, sem er um áramótin 2019/2020.

 

Hér má svo lesa niðurstöður könnunarinnar.