Staðalímyndir og líðan kynjanna á unglingastigi í tengslum við náms- og starfsval

Fimmtudaginn 9. september heldur Kristján Ketill Stefánsson, stundakennari og doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, fyrirlestur er nefnist „Staðalímyndir og líðan kynjanna á unglingastigi í tengslum við náms- og starfsval“. Fyrirlesturinn verður haldinn í Öskju, stofu 132, kl. 12.25-13.15.Í þessum fyrirlestri verður rýnt í nýjar heildarniðurstöður úr sjálfsmatskerfinu Skólapúlsinn www.skolapulsinn.is. Á síðastliðnu skólaári tóku 58 grunnskólar þátt í að meta líðan, virkni og skóla- og bekkjaranda í 6.-10.bekk í sínum skóla. Niðurstöður Skólapúlsins sýna athyglisverðan mun á líðan og viðhorfum drengja og stúlkna almennt. Niðurstöðurnar verða settar í samband við samtímakenningar sem snúa að náms- og starfsvali og þá orðræðu sem greina má á Íslandi um líðan drengja og stúlkna í skóla.


Öll velkomin!
Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum
www.rikk.hi.is