Staðall um launajafnrétti – opinn kynningarfundur á þriðjudag

Tilkynning:
Staðall um launajafnrétti verður kynntur á morgunverðarfundi á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 19.júní kl. 8-10. ASÍ, SA og velferðarráðuneytið hafa frá því í árslok 2008 haft forgöngu um gerð staðals um launajafnrétti kynjanna í samræmi við bókun aðila vinnumarkaðarins við gerð kjarasamninga í febrúar 2008 og bráðabirgðaákvæði jafnréttislaga nr. 10/2008. Verkið hefur verið unnið undir leiðsögn Staðlaráðs Íslands og með aðkomu fjölmargra aðila.
Frumvarp um jafnlaunastaðal er tilbúið til kynningar og fer nú í hefðbundið umsagnarferli samkvæmt lögum um Staðlaráð Íslands. Umsagnarferlinu lýkur 20. september næstkomandi.Ávörp á kynningarfundinum flytja:

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ
Hannes Sigurðsson aðstoðarframkvæmdastjóri SA

Jafnlaunastaðallinn:
Öguð vinnubrögð við stjórnun launamála. Hildur Jónsdóttir formaður tækninefndar um jafnlaunastaðal
Flokkun starfa: Birgir Björn Sigurjónsson hagfræðingur
Launagreiningar: Anna Borgþórsdóttir Olsen hagfræðingur
Íslenskur og evrópskur réttur á sviði launajafnréttis: Elsa S. Þorkelsdóttir lögfræðingur
Umsagnarferlið og úrvinnsla: Guðrún Rögnvaldardóttir framkvæmdastjóri Staðlaráðs

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra
Fyrirspurnir.

Allir velkomnir. Ekkert þátttökugjald.