Starfsemi Karla til ábyrgðar tryggð

Vegna umræðna í fjölmiðlum síðustu daga um erfiða fjárhagsstöðu verkefnisins Karlar til ábyrgðar, er rétt að koma þeim ánægjulegu tíðindum á framfæri að ráðuneyti félags- og tryggingamála hefur ákveðið að veita viðbótarfé til starfseminnar. Þetta meðferðarúrræði fyrir karla sem vilja losna úr viðjum ofbeldisbeitingar sinnar verður því starfrækt áfram. Ljóst er að þörfin er veruleg því frá endurreisn starfseminnar árið 2006 hafa á annað hundrað karla leitað til úrræðisins.Fréttatilkynning félags- og tryggingamálaráðuneytisins um málið.

Nánar um verkefnið.