Styrkir til atvinnumála kvenna 2014 - Kynningarfundir

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki til atvinnumála kvenna vegna ársins 2014 er velferðarráðherra veitir árlega. Styrkir þessir eru veittir af velferðarráðherra og er markmið þeirra að efla atvinnulíf og auka aðgengi kvenna að fjármagni.Til ráðstöfunar að þessu sinni eru 35 milljónir og er hámarksstyrkur kr. 3.000.000. Sérstök ráðgjafanefnd metur umsóknir og er umsóknarfrestur til miðnættis þann 24.febrúar og mun úthlutun fara fram í apríl. 

Styrkhæf verkefni skulu vera í eigu kvenna (amk 50%) og stjórnað af konum og skulu fela í sér atvinnusköpun til frambúðar.  Um nýnæmi skal vera að ræða og kröfur eru gerðar um að verkefni skekki ekki samkeppnisstöðu á markaði. 

Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar, áætlanagerðar, þróunarkostnaðar og markaðssetningar (innanlands og erlendis).  Auk þess geta konur sem hafa nýlega stofnað fyrirtæki eða eru að stofna fyrirtæki, sótt um styrk til að koma fyrirtækinu í framkvæmd (launastyrkur).  Með þeirri umsókn þarf að fylgja fullgerð viðskiptaáætlun. 
Ekki eru veittir styrkir vegna stofnkostnaðar, framkvæmda, stærri fjárfestinga né rekstrarstyrkir.  Vakin er athygli á því að styrkir eru skattskyldir og þarf að telja fram kostnað á móti. 

Ekki eru veittir hærri styrkir en sem nema helming kostnaðar við verkefni  en þetta á þó ekki við um gerð viðskiptaáætlunar.


Kynningarfundir verða haldnir á eftirtöldum stöðum;

Ísafjörður - 7.febrúar - Háskólasetur Vestfjarða kl. 12.00- 13.00

Akureyri – 10.febrúar - Hótel Kea kl.12.00- 13.00

Egilsstaðir – 11.febrúar - Hótel Hérað kl. 12.00 -13.00

Reykjanesbær – 12 febrúar - Krossmói 4 kl. 12.00- 13.00

Selfoss – 13.febrúar - Hótel Selfoss kl. 12.00- 13.00

Reykjavík 14.febrúar – Kringlan 1 kl. 12.00- 13.00

Akranes – 17.febrúar – Gamla Kaupfélagið kl. 12.00.-13.00

Auk kynninga á styrkmöguleikum verða lánamöguleikar hjá Svanna – Lánatryggingasjóðikvenna og vinnumarkaðsúrræði Vinnumálastofnunar kynnt.

Nánari upplýsingar um fundina og skráningu á þá má finna á heimasíðu og facebook síðu verkefnisins en einnig má skrá sig á fundina í netfangið: asdis.gudmundsdottir@vmst.is


www.atvinnumalkvenna.is

https://www.facebook.com/atvinnumalkvenna