Styrkir úr Jafnréttissjóði

Forsætisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Jafnréttissjóði. Um er að ræða rannsóknarsjóð og er tilgangur hans að efla kynjarannsóknir og stuðla þannig að bættri stöðu kvenna og karla og framgangi jafnréttis.

 

Í samræmi við hlutverk sjóðsins verða veittir styrkir til rannsókna sem tengjast jafnréttismálum. Gert er ráð fyrir að sjóðurinn hafi 10 millj. kr. til ráðstöfunar fyrir hvert starfsár og að styrkir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm. Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til umsækjenda. Ekki verða veittir styrkir til verkefna sem þegar er lokið.

Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum. Þau má finna á vefsíðu forsætisráðuneytis (www.forsaetisraduneyti.is, Jafnréttissjóður). Enn fremur má nálgast eyðublöð á skrifstofu ráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg (sími 545 8400, netfang postur@for.stjr.is). Umsóknarfrestur er til 1. september 2007 og verður úthlutað úr sjóðnum á degi Sameinuðu þjóðanna, 24. október 2007. Umsóknir til Jafnréttissjóðs skal senda forsætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, 150 Reykjavík.

Jafnréttissjóður starfar samkvæmt reglum nr. 513/2006, um úthlutun styrkja Jafnréttissjóðs.