Styrkir vegna Evrópuárs jafnra tækifæra

Í tilefni af Evrópuári jafnra tækifæra hefur verið ákveðið að veita styrki úr sérstökum verkefnasjóði til verkefna sem hafa það markmið að vinna að almennri og víðtækri vitundarvakningu í samfélaginu um mismunun á grundvelli kyns, öldrunar, kynþáttar, fötlunar, kynhneigðar og trúar. Auglýst hefur verið eftir umsóknum um styrki úr verkefnasjóðnum.


 

Merki Evrópuárs jafnra tækifæra 2007

Verkefni sem hljóta styrk þurfa að vera í anda Árs jafnra tækifæra sem hefur það að markmiði að gera samfélagið umburðarlyndara og víðsýnna.

Styrkir verða einungis veittir félagasamtökum og ekki verða veittir til verkefna sem er lokið. Hámarksfjárhæð styrkja er 500.000 krónur og mun styrkfjárhæð aldrei verða hærri en 50% af heildarkostnaði verkefnisins. Nánari upplýsingar um reglur, umsóknir og úthlutun styrkja er að finna á heimasíðu verkefnisins og hjá starfsmanni þess (linda.ros.alfredsdottir@fel.stjr.is).

Einungis er tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum hér að neðan og í afgreiðslu félagsmálaráðuneytisins, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu (sími 545 8100).

Umsóknarfrestur er til 1. ágúst 2007 og skulu umsóknir sendar félagsmálaráðuneytinu. Úthlutað verður úr sjóðnum fyrir 18. ágúst 2007. Stýrihópur Evrópuársins 2007, Árs jafnra tækifæra, metur umsóknir og ákveður um úthlutun styrkja.

Umsóknareyðublað fyrir styrk vegna verkefna í tilefni af Evrópuári jafnra tækifæra 2007