Sýnileiki kvenna í fjölmiðlum á kosningaári

KRFÍ stendur fyrir súpufundi á Hallveigarstöðum, í dag 5. nóvember kl. 12.00-13.00 undir yfirskriftinni: Sýnileiki kvenna í fjölmiðlum á kosningaári. Stutt erindi flytja Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi og Svanhildur Kaaber, formaður stjórnar Ríkisútvarpsins.Súpa og brauð í boði KRFÍ. Allir velkomnir. Skráning á krfi[hjá]krfi.is

KRFÍ hefur gert stutta könnun á því af hvaða kyni viðmælendur tveggja vinsælla umræðuþátta hjá Ríkissjónvarpinu- og útvarpinu hafa verið undanfarna tvo mánuði. Um er að ræða þættina Silfur Egils í Sjónvarpinu og útvarpsþáttinn Vikulokin á Rás 1. Í ljós kom að konur eru þar í miklum minnihluta eða um 22-25% viðmlælenda.