Þekking í þágu jafnréttis

Forsætisráðherra afhendir styrki úr Jafnréttissjóði á Kvennafrídaginn miðvikudaginn, 24. október nk. Styrkirnir verða afhentir við athöfn í Rímu á jarðhæð Hörpu kl. 15. Dagskráin hefst með málþingi um niðurstöður þeirra rannsóknarverkefna sem hlutu styrk úr sjóðnum árið 2008. Jafnframt mun velferðarráðherra kynna nýja framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarnarinnar um launajafnrétti kynja. 


Dagskrá í tilefni af styrkveitingu Jafnréttissjóðs: 

  • Ávarp forsætisráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur.
  • Erla Dóris Halldórsdóttir doktorsnemi í sagnfræði: Ljósfaðir, yfirsetumaður og/eða accoucheur og aðkoma þeirra að barnsfæðingum. Áhrif kyngervis á ljósmæðrastéttina árin 1760-1880.
  • Jónína Kristjánsdótir MA í alþjóðafjármálum og bankastarfsemi: Mikilvægi fjölbreytileika í stjórnum fyrirtækja.
  • Anna Guðrún Edvardsdóttir doktorsnemi við menntavísindasvið HÍ: Staða og rými kvenna í dreifbýli á Íslandi.
  • Rósa G. Erlingsdóttir formaður Jafnréttissjóðs kynnir styrkveitingar Jafnréttissjóðs 2012. Afhending.
  • Velferðarráðherra Guðbjartur Hannesson kynnir aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinanr í launajafnrétti kynja.

Um Jafnréttissjóð:

Í aðdraganda 30 ára afmælis Kvennafrídagsins 1975 samþykkti samþykkti ríkisstjórn Íslands árið 2005 að stofna sérstakan rannsóknarsjóð, Jafnréttissjóð, sem ætlað er að veita fé til rannsókna á á stöðu kvenna og karla.  Sjóðnum er ætlað að vera framlag og hvatning til þess að hér á landi séu unnar vandaðar rannsóknir á sviði jafnréttis- og kynjafræða. Lögð er áhersla á að veita fé annars vegar til rannsókna á stöðu karla og kvenna á vinnumarkaði og hins vegar til rannsókna á áhrifum gildandi löggjafa á sviði jafnréttismála. Þess utan er lögð áhersla á að styrkja rannsóknir á þeim málum sem eru ofarlega á baugi í akademískri og opinberri umræðu hverju sinni. Sérstaklega er horft til þátttöku ungra vísindamanna í rannsóknarverkefnunum og áhersla lögð á að styrkja doktorsrannsóknir á sviðinu.
 
Sjóðurinn starfar skv. reglum um úthlutun styrkja Jafnréttissjóðs nr. 513/2006. Jafnréttissjóður er vistaður í forsætisráðuneyti og skipar forsætisráðherra formann sjóðsins sem er Rósa Guðrún Erlingsdóttir, stjórnmálafræðingur og doktorsnemi við Háskóla Íslands. Aðrir í stjórn sjóðsins eru Jóna Pálsdóttir, tilnefnd af menntamálaráðherra og Ingi Valur Jóhannsson, tilnefndur af velferðarráðherra. Varamenn eru Stefán Stefánsson sérfræðingur í menntamálaráðuneyti, Björg Fenger, sérfræðingur í velferðarmálaráðuneyti og Hildur Jónsdóttir jafnréttisfulltrúi í forsætisráðuneyti. 

Í ár er veitt úr sjóðnum í fjórða skipti en áður voru veittir styrkir árin 2006, 2007 og 2008. Sjóðurinn starfaði ekki á árunum frá 2009-2011. Að þessu sinni bárust 13 umsóknir og var alls sótt um 39,3 milljónir króna. Að þessu sinni fá fimm verkefni styrk samtals að upphæð 9,0 milljónum króna.


Allar nánari upplýsingar veita: Rósa Guðrún Erlingsdóttir, formaður Jafnréttissjóðs, í gsm. 6150698 eða rge1@hi.is. og Hildur Jónsdóttir í gsm. 863 5383 eða hildur.jonsdottir@fel.stjr.is